Bréf til landeigenda og ábúenda
Grundarfjarðarbær (skipulags- og byggingarfulltrúi) hefur sent bréf til landeigenda og ábúenda jarða í sveitarfélaginu.
Þar er óskað eftir upplýsingum í tengslum við endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins, um ýmis atriði sem snerta framtíðarlandnotkun og þróun í dreifbýlinu.
Hér má sjá bréfið til landeigenda.
Hér eru svarblöð sem hægt er að prenta út og nota:
Almennar spurningar:
a) Word útgáfa, hægt að hlaða niður, tölvufæra svör á blaðið og senda.
b) PDF útgáfa sem hægt er að prenta.
Hér eru svo svarblöð sérstaklega fyrir efnistökusvæði (námur) í sveitarfélaginu.
Senda má svarblöð til skipulags- og byggingarfulltrúa í netfangið bygg@grundarfjordur.is, en auk þess má hringja í hann með svör, s. 430 8500.